#53 - Mitrokhin skjölin
Skuggavaldið

#53 - Mitrokhin skjölin

2026-10-26

Vasilí Mitrokhin var skjalavörður hjá sovésku leyniþjónustunni KGB. Í tólf ár afritaði hann þúsundir skjala á laun og kom safninu að lokum með ævintýralegum hætti til Vesturlanda eftir hrun Sovétríkjanna. Skjölin ollu jarðskjálfta í leyniþjónustuheiminum og komu upp um njósnara víða um heim. Við rekjum sögu hans og spyrjum hvað rak hann áfram: hugsjónir, hefnd eða fjölskyldan?

Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps.

Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected].

Skuggavaldið

skuggavaldid
No. of episodes
54
Latest episode
2026-10-26

Where can you listen?

Í Skuggavaldinu ræða prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir saman um hvaðeina er viðkemur samsæriskenningum. Samfara örum samfélagsbreytingum hefur samsæriskenningum hratt vaxið fiskur um hrygg, svo sem í kjölfar Brexit, stjórnartíðar Donalds Trump og COVID-faraldursins. Samsæriskenningar eru þó ekki nýjar af nálinni, heldur hafa þær fylgt manninum frá öndverðu og nærast á þörf til að greina hulið skipulag í óreiðu.

Framleitt af Tal.

Episodes